30. maí 2017, kl. 18:00 á Kex, fundur hófst ca. 18:15
Mætt ca. 30
Fráfarandi formaður (Markús) setur fund
- Fundarstjóri – Markús
- Fundarritari - Ólafur Sverrir
- Unnur, framkvæmdarstjóri, fór yfir viðburði á starfsárinu, 18 viðburðir yfir starfsárið
- Framundan eru tveir viðburðir í júní
- Benedikt kynnir og fer yfir:
- SVEF slack er orðið opinbert, skráning gegnum https://slack.svef.is
- Nýr vefur SVEF verður smíðaður af samfélaginu og er komið repo á github: https://github.com/svef/svef.is
- Í haust verður vinnustofa með Remy Sharp – Master Browser Dev Tools
- IceWeb verður haldin í janúar 2018, stefnt á early bird skráningu í samstarfi við Karolina Fund til að tryggja fjármögnun
- Innsendingar til vefverðlauna verða fyrr á þessu ári, og verður settur fókus á að ekki aðeins „nýir“ vefir séu sendir inn
- Unnur fór yfir ársreikning
- Engar spurningar varðandi ársreikning komu fram
- Benedikt fór yfir tillögur til lagabreytinga
- Hætta að kjósa fundarstjóra – Fundarstjóri tekur þátt í að undirbúa fundinn og glærur, því væri eðlilegra að hann væri valinn af stjórn – svef/Laws#12 — Tillaga felld með meirihluta
- Viðbót til 6. gr, hverjir eru kjörgengnir til formanns SVEF – svef/Laws#11 – Tillaga felld með jöfnum fjölda atkvæða
- Tillaga um að árgjald sé óbreytt, 14.900 kr.-
- Félagsgjöld hækkuð töluvert í fyrra
- Spurningar félagsmanna
- Hefur hækkun skilað sér? Unnur: Já, hærri. 1.2m í fyrra, 1.8m í ár
- Er afkoma um 2.4m ekki góð? Markús: Í fyrra um 300þ og var tvísýnt um að halda Iceweb og vefverðlaun. Þarf olnbogarými til að halda viðburði, Iceweb og vefverlaun, og að geta greitt laun framkvæmdarstjóra
- Eitt framboð til formanns, Jonathan Gerlach, sjálfkjörin og kynnti hann sig
- Þrjú sæti laus í stjórn, sjö aðilar í framboði og fengu þau tækifæri til að kynna sig fyrir félagsmönnum
- Anna Signý Guðbjörnsdóttir
- Arnór Bogason
- Atli Stefán Yngvason
- Benedikt D Valdez Stefánsson
- Hjalti Már Einarsson
- Petra Dís Magnúsdóttir
- Ragnar Þór Valgeirsson
- Ragnar Þór komst ekki, þar sem framkvæmdir fyrir utan Kex lokuðu á hjólastólaaðgengi, sem er miður
- Kosning fór fram með útbýtingu atkvæðaseðla þar sem hægt var að skrifa allt að þrjú nöfn, hvert nafn er eitt atkvæði og því þrjú atkvæði möguleg per atkvæðaseðil
- Meðan talning atkvæða fór fram hélt Pablo Santos, vefhönnuður hjá Vefdeild Landsbankans tölu
- Niðurstaða kosningar:
- Anna
- Benedikt
- Hjalti
- Einar
- Soffía Þórðardóttir
- Engin önnur mál
Fundi slitið 19:40